Landsbankinn í Lúxemborg er dótturfélag Landsbanka Íslands hf.
Viðskiptadómstóll í Lúxemborg úrskurðaði þann 12. desember að starfsemi Landsbanks í Lúxemborg skuli slitið. Dómstólinn hefur skipað skiptastjóra til að annast slit starfseminnar.
Upplýsingar varðandi innlánstrygginar í Lúxemborg
Association pour la Garantie des Dépots, Luxembourg (AGDL) tryggir innistæður að fjárhæð EUR 20,000. Eigendur innlána hjá Landsbankanum í Lúxemborg þurfa að fylla út eyðublað og skila inn til AGDL til að sækja um innlánstryggingu hjá AGDL.
Hér má sjá dæmi um hvernig skuli fylla út eyðublaðið frá AGDL:
Leiðbeiningar fyrir eyðublað
Frekari skýringar á einstökum liðum:
- Upplýsingar um umsækjanda um innlánstryggingu, reikningseigendur (geta verið fleiri en einn aðili), hverjir hafa umboð og undirskiftir þeirra.
- Upplýsingar ef umsækjandi er fyrirtæki.
- Upplýsingar um reikningsnúmer og upphæð.
- Upplýsingar hvort viðkomandi hafi fengið greitt áður innlánstryggingu fyrir viðkomandi reikning.
- Upplýsingar varðandi reikningsnúmer til greiðslu innlánstryggingar.
Ef viðskiptavinur á reikning í íslenskum krónum hjá Landsbankanum í Lúxemborg:
-
BIC Code : Hér á að setja NBIIISRE.
-
IBAN No : Hér á að koma reikningsnúmer sem viðkomandi vill að verði lagt inn á. IBAN númer er leyninúmer hvers reiknings og má finna í Einkabankanum þegar skoðaður er viðkomandi reikningur.
Ef viðskiptavinur á reikning í öðrum myntum en íslenskum krónum hjá Landsbankanum í Lúxemborg:
-
BIC Code : Hér eiga að koma greiðslufyrirmæli um inn á hvaða banka eigi að leggja greiðslu. Allar greiðslur í erlendri mynt til Landsbankans, NBI hf. þurfa að fara í gegnum Seðlabanka Íslands. Best er að setja í þennan reit ” see attached document” og láta eftirfarandi skjal fylgja með:
Greiðsluleiðbeiningar - Á skjalinu koma fram greiðslufyrirkomulag eftir myntum.
-
IBAN No : Hér á að koma reikningsnúmer sem viðkomandi vill að verði lagt inn á. IBAN númer er leyninúmer hvers reiknings og má finna í Einkabankanum þegar skoðaður er viðkomandi reikningur.
-
Currency : Hér að koma fram í hvaða mynt viðkomandi vill fá greitt. Mikilvægt að fylla í þennan reit til að önnur greiðslufyrirmæli séu rétt.
Eyðublaðið skal senda til:
ASSOCIATION POUR LA GARANTIE DES DEPOTS
Boîte Postale 241
L-2012 Luxembourg
Athugið að ekki má senda eyðublaðið með vefpósti heldur þarf það að vera undirritað og sent með pósti.
Leiðbeiningar fyrir eyðublað
Greiðsluleiðbeiningar