| Þú ert hér: | Heim / | Fréttir |
Þann 23. mars s.l. lauk málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í ágreiningsmálum um kröfur FSCS og DNB á hendur Landsbanka Íslands hf. vegna svokallaðra Icesave innlána. Í málunum var deilt um forgang innstæðna og gildi neyðarlaganna sem og hvort FSCS og DNB ættu rétt á vanskilavöxtum og kostnaði. Aðild að málunum áttu auk FSCS, DNB og slitastjórnar hópur almennra kröfuhafa sem hafði mótmælt þeirri afstöðu slitastjórnar að viðurkenna forgang krafnanna. Þess má geta að 23. febrúar sl. lauk málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í þeim sjö ágreiningsmálum um bresk og hollensk heildsöluinnlán sem voru valin sem prófmál. Í þeim málum var einnig tekist á um gildi forgangsréttarákvæðis neyðarlaganna en auk þess sem þar reynir á hvort heildsöluinnlán teljist innstæður í skilningi laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfa fyrir fjárfesta. Vænta má úrskurða í þessum ágreiningsmálum á næstu vikum en niðurstöður þeirra skipta sköpum um hvernig útgreiðslum til kröfuhafa bankans verður háttað.
| 13.05.2013 | Kröfuhafafundur |
| 11.01.2013 | Nýtt nafn tekið í notkun, LBI hf. |
| 06.12.2012 | Tilkynning frá LBI |