Úrskurðir í ágreiningsmálum vegna Icesave innstæðna

28.04.2011

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp úrskurði ágreiningsmálum um innstæðukröfur bresku og hollensku innstæðutryggingasjóðanna vegna þarlendra Icesave innlánsreikninga. Afstaða slitastjórnar um forgang, fjárhæð höfuðstóls og eignarhald (aðilaskipti) var staðfest. Þá var komist að þeirri niðurstöðu að bresk og hollensk lög ættu við um ákvörðun vaxta og um kostnaðarkröfur. Talið var að uppfyllt væru skilyrði til vanskilavaxta samkvæmt þeim lögum. Ekki var fallist á að skilyrði væru til greiðslu kostnaðar.

Málsaðilar hafa tveggja vikna frest til að kæra úrskurðina til Hæstaréttar Íslands.

Linkar á úrskurði:

Til baka



Eldri fréttir

LBI hf. | Álfheimar 74, 2. hæð | 104 Reykjavík
Kt. 540291 2259 | Sími: +354 4103900 | Fax: +354 4103920 | Netfang: info@lbi.is
Lagalegur Fyrirvari | Notkunarskilmálar | Veftré | Kröfuhafaskýrslur