Kröfuhafafundur

19.05.2011

Af hálfu skilanefndar og slitastjórnar Gamla Landsbankans (GLI) var haldinn kröfuhafafundur í dag, þann 19. maí 2011.

Kröfuskrá - ágreiningsmál

Á kröfuhafafundinum var kynnt afstaða slitastjórnar til 1.505 krafna á hendur bankanum og hefur nú verið tekin afstaða til samtals 10.657 krafna af þeim um 12 þúsund kröfum sem lýst var. Meginhluti þeirra krafna sem var fjallað um á fundinum var vegna skuldabréfa sem GLI gaf út og seldi. Þá var m.a. kynnt afstaða til krafna sem Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta lýsti.

Á fyrri kröfuhafafundum hefur verið fjallað um afstöðu til samtals 9.152 krafna og eru langflestar umþrættar. Haldnir hafa verið fundir til að jafna ágreining um 1.441 kröfur og hefur 325 ágreiningsmálum verið vísað til dómstóla.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp úrskurði í 18 ágreiningsmálum GLI. Af þeim hafa 17 verið kærðir til Hæstaréttar og hafa nú gengið hæstaréttardómar í sex málum. Meðal úrskurða sem kveðnir hafa verið upp eru ágreiningsmál um kröfur vegna heildsöluinnlána breskra og hollenskra sveitarfélaga. Héraðsdómur staðfesti afstöðu slitastjórnar um að heildsöluinnlánin teldust innstæður í skilningi laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta og að lagaákvæði um forgang innstæðna væri gild réttarheimild. Einnig hafa verið kveðnir upp úrskurðir í ágreiningsmálum um innstæðukröfur bresku og hollensku innstæðutryggingasjóðanna vegna Icesave innstæðna og var niðurstaða þeirra á sama veg. Allir þessir úrskurðir um innstæðukröfur hafa verið kærðir til Hæstaréttar.

Fimm riftunarmál hafa verið höfðuð og hefur héraðsdómur gengið í einu þeirra þar sem fallist var á riftun á greiðslu kaupauka haustið 2008. Unnið er að höfðun riftunar- og skaðabótamála og má vænta þess að dómsmál verði höfðuð í vor og á komandi hausti.

Fjármál GLI

Á kröfuhafafundinum voru kynntar upplýsingar um fjárhag GLI fyrir fyrsta ársfjórðung 2011. Verulegur árangur náðist í auknum endurheimtum bankans og nam aukningin rúmum 70 milljörðum króna milli tímabila. Í erlendum myntum talið er raunaukningin frá síðasta ársfjórðungi tæpir 36 milljarðar króna, en rúmir 33 milljarðar eru vegna gengisbreytinga. Sé miðað við fastsett gengi íslensku krónunnar þann 22.4. 2009 eru endurheimtur áætlaðar um 1300 milljarðar króna, eða sem nemur um 99% af bókfærðri stöðu forgangskrafna (sem eru Icesave innlán og heildsöluinnlán) m.v. sama dag. Sé miðað við endurheimtur m.v. gengi íslensku krónunnar á viðmiðunardögum eru áætlaðar endurheimtu 1.245 milljarðar króna miðað við gengi hennar þann 31. mars s.l. eða um 94% af bókfærðri stöðu forgangskrafna.

Sú jákvæða þróun hélt áfram að reiðufé skilar sér hraðar inn í bankann en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir og nam það um 408 milljörðum króna þann 31. mars sl. Reiðufé er nú sem nemur um þriðjungi af bókfærðri stöðu forgangskrafna, áætlaðar endurheimtur samkvæmt samningi við Landsbankann hf. (áður NBI hf.) nema um þriðjungi forgangskrafna og útlán og aðrar eignir nema um þriðjungi.

Heildarkostnaður við slitameðferðina hélt áfram að lækka á fyrsta ársfjórðungi og dróst saman um 6% milli fjórðunga, en um 21% á ársgrundvelli. Kostnaðurinn nemur um 1/3 af vaxta- og þóknanatekjum bankans á fyrsta ársfjórðungi. Heildarkostnaður við slitameðferð GLI frá upphafi hennar í apríl 2009 til mars 2011 er samtals um 1,5% af metnu heildarverðmæti eigna og samtals um 10% af hækkun á áætluðu verðmæti eignanna á þessu tímabili.

Annað markvert í starfsemi GLI

Á fyrsta ársfjórðungi var lokið við af hálfu skilanefndar að yfirtaka allt veðsett hlutafé í Iceland Foods Group Limited, og nemur hlutafé í eigu GLI nú um 67% af heildarhlutafé félagsins. Jákvætt var að bankinn fékk arðgreiðslu frá félaginu sem nam um 13 milljörðum króna. Ákveðið var að ráða tvo stóra alþjóðlega banka, svissneska bankann UBS og bandaríska bankann Bank of America Merrill Lynch (BAML) til þess að veita GLI ráðgjöf um möguleika á sölu á hlutnum í IF. Á kröfuhafafundinum var kynnt sú skoðun UBS og BAML að aðstæður séu góðar á markaði og því sé skynsamlegt að hefja söluferli. Í ljósi þessa hefur skilanefnd bankans ákveðið að hefja formlegt söluferli með hluti bankans í félaginu.

Formlegt söluferli hófst nýverið á 66% hlut bankans í Aurum Group, sem samanstendur af verslanakeðjunum Mappin & Webb, Goldsmiths og Watches of Switzerland. Ráðgjafar- og fjármálafyrirtækið Cavendish Corporate Finance í Bretlandi var ráðið til ráðgjafar við söluferlið.

Til baka



Eldri fréttir

LBI hf. | Álfheimar 74, 2. hæð | 104 Reykjavík
Kt. 540291 2259 | Sími: +354 4103900 | Fax: +354 4103920 | Netfang: info@lbi.is
Lagalegur Fyrirvari | Notkunarskilmálar | Veftré | Kröfuhafaskýrslur